Thursday, November 17, 2005

JÓL !!!

Ég elska jólin örugglega heitar en nokkuð annað barn í heiminum, og já þegar það kemur að jólunum þá er ég barn. Og það besta er að ÞAU ERU AÐ KOMA. Eftir reyndar sex vikur eða svo. En samt undirbúningur að byrja og svona. Ég og Helga fórum allavega í smá leiðangur áðan að kaupa í allt föndrið og svona. Ætlum að búa til aðventukrans auðvitað og svo er verið að plana alvöru pakkadagatal líka. Hef mjög spes skoðnir um hvernig það á að vera svo ég veit að ég þarf líklegast að gera það sjálf, því búðirnar virðast ekki vera sammála mér um hönnun á svoleiðis grip. En ég er ekkert sérlega handlaginn samt og hef einungis tvær vikur til að ráða fram úr þessu vandámáli...því svo má það heldur ekki kosta of mikið.

Er sko með jólin á heilanum. Ætla ekki að sýna þá geðveiki meira í þessu bloggi. Er bara að reyna að drekka te til að ná mér aðeins niður eftir daginn. Á eitthvað erfitt með kyrrsetu þessa stundinda og komið að háttatíma svo :-/ Hef þetta ekki lengra að sinni.

No comments: