Monday, November 21, 2005

FLUGFÉLÖG...URR!

ARG ég hata flugfélög. Það er enginn sem hata flugfélög jafn mikið og ég. Er alveg að tapa mér hérna. Þarf að fara þrisvar til Íslands um frá jólum og fram í febrúar og það eru bara vesen. Annað hvort þarf ég að borga milljón, fljúga með flugfélagi sem hefur svikið mig illilega og ég stend í e-mail rifrildi við og er búin að hóta að ALDREI fljúga með aftur eða bara vera í tvo daga hvora leið!!!!!

Hvað segiði, hvaða möguleiki ætli sé bestur?????

Á frekar erfitt með skapið í þessum málefnum. Ekki jafn erfitt með það samt og hochschuledirigent Lutz Köhler þegar t.d. einhver AUMINGI gerir ekki mun á tvíólu og dúólu upptakti...En þannig er það nú bara. Tónleikar á fimmtudaginn, geðvonskan í botn á miðvikudag, þá smellur þetta örugglega saman...ÚFF

No comments: