Sunday, November 13, 2005

Betra seint en aldrei

Vei það tókst. Ég hafði mig útí að búa til blogg. Eða reyndar að sagt Helga gerði það. Er bara ekki svo hrifin af tölvum, þær virðast bara einfaldlega ekki hlýða mér. Mér hefur líka ekki fundist ástæða til að byrja á að segja frá lífi mínu eftir að Helga fór að blogga aftur því að það virðist sem að við gerum ALLT saman. En úff allt þetta tölvustúss til að koma þessari síðu á netið bara tók frá mér alla orku og nú hef ég ekkert að segja. Gaman að því. En ég ætla heldur ekki að láta neinn vita af þessari síðu þar til ég hef eitthvað aðeins meira spennandi að segja. Það verður vonandi á morgunn....

No comments: