Thursday, December 01, 2005

1. des

Ég elska fyrsta desember því þá getur maður verið jólafrík án þess að skammast sín. Við sambýliskonurnar sitjum núna á gólfinu með jólatónleika sinfóníuhljómsveit Íslands í bakgrunni og föndrum jólaskraut af mikilli list. Erum komnar með æðislegan aðventukrans, tiltölulega frumlegt heimatilbúið pakkadagatal, "jólatré" (greinar í glasi) með slaufu og músastiga. Svo langar mig til að þakka henni ásdísi systir minni alveg sérstaklega fyrir allar fallegu jólamyndirnar sem hún sendi Helgu í fyrra, þær koma sér vel núna, einstaklega fallegar.

Við erum allavega með hjörtun full af jólum. Reyndar virðist nefið vera að fyllast af hori líka en það er önnur saga.

No comments: