Sunday, June 22, 2008

PRÓF :-S

Guð minn almáttugur...ég er að fara í próf á morgunn!!! Mér finnst ekki gaman af sellóprófum. Tónleikar geta verið semmtilegir þrátt fyrir tilheyrandi stress en próf eru bara einfaldlega ömurleg. Semsagt mjög gott þegar það verður búið.

Annars virðist ég vera hætt að gefa Stjána mínum "dauða hluti" því um jólin fékk hann líkamsræktarkort með Spa notkun svo það var bæði fyrir líkama og sál. Síðan var ég að enda við að skipuleggja mergjaða paraferð til prag með helgu og jóa í afmælisgjöf handa honum...Það verður enginn smá lúxus á liðinu.
(Bara svona svo að allir séu með það á hreinu á Kristján samt ekki afmæli fyrr en 29. júní en ég er ömurleg í að halda leyndarmálum svo hann veit alveg af þessu.)

Helga sagði mér líka í dag þær yndislegu fréttir að hún ætlar að heimsækja mig í byrjun júlí svo þótt ungfónía hafi stolið af mér stjánanum mínum (eða reyndar keypt hann því þeir borga víst meira en ég:-/) verð ég sko ekki ein:-) Gaman gaman, stuð í LÜB...

Jæja ætla að skella mér yfir til nágrananna og fá lánaðan poppmais. Það er víst ekki hægt að neita sér um fíknina sína svona kvöldið fyrir próf...

3 comments:

Anonymous said...

Gangi þér vel í prófinu. Erna og fjölsk. á Hornafirði

Anonymous said...

Gangi þér vel elskan hugsa til þín.
knús mamma

Anonymous said...

Gangi þér vel í prófinu, og skemmtið ykkur vel í Prag!