Monday, February 11, 2008

Ísland

Þá er það ákveðið, ég verð áfram á Íslandi. Er semsagt búin að missa af prófum og alles úti og endurtektarpróf verða að öllum líkindum ekki fyrr en í byrjun næsta semesters, þ.e.a.s í apríl. Kristján er svo mikið á ferðinni þessa dagana svo að það er víst eins gott að ég verði bara hér. Fæ vonandi eitthvað að gera svo mér leiðist ekki of mikið...

Síðustu vikur hafa verið mjög erfiðar en vonandi fer aðeins að birta til, í dag er allavega merkisdagur því hún móðir mín síunga er nefnilega fertug akkúrat í dag. Tilhamingju með það elsku mamma:-)

2 comments:

Anonymous said...

Til hamingju með múttuna þína!
Knús á ykkur

Anonymous said...

Til hamingju með mömmu þína knúsaðu hana frá mér... og láttu hana knúsa þig frá mér líka:)